 
Vottorð
Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og uppsetningu 
hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið öryggi fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér. 
Vottorðastjórinn verður að vera með rétt, sannvottuð eða tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist. Vottorð eru 
bundin tilteknum tíma. Ef textinn Útrunnið vottorð eða Ógilt vottorð birtist þó að vottorðið ætti að vera gilt skal 
athuga hvort rétt dag- og tímasetning er á tækinu.
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess og að það 
tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.
Til eru þrenns konar vottorð: vottorð þjóns, heimildarvottorð og notandavottorð. Þú gætir fengið þessi vottorð 
hjá þjónustuveitunni. Þjónustuveitan vistar heimildarvottorðin og notandavottorðin í öryggiseiningunni.
Til að skoða lista yfir heimildar- og notandavottorð sem hefur verið hlaðið niður í símann skaltu velja
Valmynd
>
Vefur
>
Stillingar
>
Öryggisstillingar
>
Heimildavottorð
eða
Notandavottorð
.
Öryggisvísirinn
birtist meðan tenging er virk ef gagnaflutningur milli símans og efnismiðlarans er
dulritaður.
Öryggistáknið sýnir ekki að gagnasendingin milli gáttarinnar og efnisþjónsins (eða staðarins þar sem umbeðin tilföng eru 
geymd) sé örugg. Þjónustuveitan tryggir gagnasendinguna milli gáttarinnar og efnisþjónsins.